Lögfræðiþjónusta Lögmáls ehf.

Lögmál ehf.

Þjónusta

Lögmál býður upp á alla almenna lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök.

Áhersla er lögð á persónulega þjónustu. Hér má finna yfirlit yfir helstu svið lögfræðiþjónustu stofunnar.

Málflutningur

Lögmenn Lögmáls ehf. búa yfir víðtækri málflutningsreynslu. Annast lögmennirnir málflutning fyrir héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands, sem og málflutning fyrir gerðardómum og stjórnvöldum þegar það á við.

Gjaldtaka fyrir málflutning er háð umfangi og vinnuframlagi í hverju máli fyrir sig. Jafnan er samið hverju sinni við umbjóðendur félagsins um fyrirkomulag þóknana vegna málflutnings. Er almennt miðað við að viðskiptamanni félagsins sé gerður reikningur mánaðarlega eða eftir framvindu hvers verks fyrir sig.

Innheimta

Lögmál ehf. býður upp á öfluga lögfræðiinnheimtu vanskilakrafna, þar sem lögð er áhersla á vönduð og hröð vinnubrögð.

Gerum föst tilboð í innheimtur sé þess óskað.

Yfirlit yfir þjónustu

Helstu svið

Einstaklingar og fjölskyldur

  • Slysamál
  • Skaðabótaréttur / Tjónabætur
  • Erfðaréttur
  • Erfðaskrár
  • Kaupmálar
  • Sambúðarsamningar
  • Búskipti / Dánarbú
  • Lögræðismál
  • Fasteignamál

Fyrirtæki, félög og rekstur

  • Fyrirtækjalögfræði
  • Félagaréttur
  • Stofnun félaga
  • Samningar / Samningaréttur
  • Starfsmannamál
  • Innheimtur
  • Gjaldþrotaskipti / Þrotabú
  • Fjármögnun
  • Frjáls félagasamtök

Fasteignir, stjórnsýsla og sérsvið

  • Fasteignaréttur
  • Eignarréttur
  • Leigusamningar
  • Skipulagsréttur
  • Bygginga- og skipulagslöggjöf
  • Verktakaréttur
  • Útboðsréttur
  • Stjórnsýsluréttur
  • Umhverfisréttur
  • Veiðiréttur / Veiðiréttindi
  • Upplýsingatækniréttur
  • Vátryggingaréttur

Lögfræðiþjónusta

Þarftu aðstoð lögmanns?

Hafa samband