Undirritun skjals á skrifstofu Lögmáls ehf.

Innheimta

Lögfræðiinnheimta vanskilakrafna

Lögmál ehf. býður upp á öfluga lögfræðiinnheimtu vanskilakrafna, þar sem lögð er áhersla á vönduð og hröð vinnubrögð.

Við aðstoðum kröfuhafa við innheimtu og eftirfylgni vanskilakrafna með faglegum hætti. Óski viðskiptavinir eftir því gerum við bindandi tilboð í innheimtu krafna.

Tveir möguleikar

Hvernig getum við aðstoðað?

Innheimtumál geta snúið að ólíkum aðilum. Hér má annars vegar finna upplýsingar um lögfræðiinnheimtu fyrir kröfuhafa og hins vegar almennar upplýsingar fyrir þá sem hafa fengið innheimtubréf frá Lögmáli.

Fyrir kröfuhafa

Lögmál sinnir lögfræðiinnheimtu vanskilakrafna fyrir fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklinga. Áhersla er lögð á skýrt ferli, fagleg vinnubrögð og hraða eftirfylgni.

Senda fyrirspurn

Fékkstu innheimtubréf?

Ef þú hefur fengið innheimtubréf frá Lögmáli getur þú hér séð almennar upplýsingar um næstu skref, greiðslu, athugasemdir og hvernig best er að hafa samband.

Sjá næstu skref

Innheimtuferlið

Innheimtuferlið

Markmiðið er að ferlið sé skýrt, skilvirkt og faglegt frá fyrstu yfirferð til eftirfylgni máls.

  1. Yfirferð kröfu

    Við förum yfir fyrirliggjandi gögn, stöðu kröfu og næstu skref áður en innheimtuaðgerðir hefjast.

  2. Innheimtuaðgerðir

    Skuldara er gefinn kostur á að bregðast við, greiða eða koma athugasemdum á framfæri innan tilgreinds frests.

  3. Eftirfylgni

    Ef krafa fæst ekki greidd er málinu fylgt eftir með viðeigandi hætti og metið hvaða frekari úrræði koma til greina.

Fyrir kröfuhafa

Aðstoð við innheimtu vanskilakrafna

Lögmál aðstoðar viðskiptavini við innheimtu krafna með áherslu á skilvirka framkvæmd, skýr samskipti og vönduð lögfræðileg vinnubrögð.

Senda fyrirspurn
  • Yfirferð gagna og stöðu kröfu
  • Gerð innheimtubréfa og greiðsluáskorana
  • Samskipti við skuldara
  • Eftirfylgni vegna vanskila
  • Mat á frekari úrræðum
  • Bindandi tilboð sé þess óskað

Almennar upplýsingar

Ég fékk innheimtubréf — hvað geri ég?

Ef þú hefur fengið bréf frá Lögmáli vegna kröfu er mikilvægt að kynna sér efni bréfsins vel og bregðast við innan þess frests sem þar kemur fram.

Greiða kröfuna

Ef þú kannast við kröfuna og hún er rétt er almennt einfaldast að greiða hana samkvæmt þeim upplýsingum sem koma fram í bréfinu.

Hafa samband

Ef þú þarft nánari upplýsingar um kröfuna eða vilt ræða greiðslufyrirkomulag getur þú haft samband við skrifstofu Lögmáls.

Koma athugasemdum á framfæri

Ef þú telur kröfuna ranga eða hefur athugasemdir við hana er mikilvægt að koma þeim á framfæri eins fljótt og auðið er.

Almennar upplýsingar á síðunni koma ekki í stað sérstakrar lögfræðilegrar ráðgjafar vegna einstakra mála.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Tengd þjónusta

Lögmál veitir einnig ráðgjöf á skyldum sviðum, meðal annars vegna greiðslustöðvunar, nauðasamninga, eignaumsýslu og samninga um skuldaskil.

Sjá alla þjónustu

Lögfræðiinnheimta

Viltu fá nánari upplýsingar?

Hafðu samband við Lögmál í síma 511-2000 eða sendu fyrirspurn á logmal@logmal.is.