
Þorbjörn lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009 og LL.M gráðu með áherslu á Evrópu- og þjóðarétt frá London School of Economics (LSE) árið 2013. Hann öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2014. Þorbjörn starfaði sem lögmaður frá 2014 til 2017, fyrst hjá JP lögmönnum og síðar í eigin rekstri. Þá starfaði hann sem lögfræðingur og verkefnastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum á árunum 2017 til 2025. Þorbjörn hefur einnig starfað við rannsóknir á alþjóðadómstólum við Hebreska háskólann í Jerúsalem, sem nefndarritari hjá Alþingi og sem sérfræðingur fyrir innkaupateymi Alcoa Fjarðaáls.
Starfssvið
- Samningaréttur
- Evrópuréttur
- Stjórnsýsluréttur / hagsmunagæsla gagnvart stjórnvöldum
- Refsiréttur / verjendastörf
- Skaðabótaréttur
