
Hrefna Þórsdóttir útskrifaðist með B.A. próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og með meistarapróf í lögfræði frá sama skóla árið 2014. Hún stundaði skiptinám við lagadeild Háskólans í Stokkhólmi í Svíþjóð árin 2011–2012 og lauk framhaldsnámi þar í Evrópurétti árin 2012–2013 með LL.M. gráðu. Hrefna starfaði í tæpan áratug hjá Reykjavíkurborg, fyrst á skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar og síðar á skrifstofu borgarstjóra. Hún hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2018. Hrefna hóf lögmennsku í eigin rekstri árið 2024 undir merkjum Novum lögfræðiþjónustu. Árið 2025 gekk Hrefna til liðs við Lögmál ehf. sem meðeigandi.
Starfssvið
- Lóðarréttindi og byggingarréttur
- Uppbyggingar- og innviðasamningar sveitarfélaga
- Eignarréttur
- Stjórnsýsluréttur
- Verktakaréttur
- Útboðsréttur
- Fasteignakauparéttur
- Skipulagsréttur
- Þinglýsingar
- Gjaldþrotaskipti
- Verjendastörf
- Réttargæsla
